Velkomin(n) á síðuna mína :)

25.06.2007 15:57:13 / joninar

Gleði Gleði;)

Ég fékk þær ótúlega góðu fréttir á föstudaginn að ég væri komin inn í Iðnskólan í Hafnafirði og er ekkert smá ánægð. Þá get ég loksins farið að læra það sem ég vil læra og búin að bíða eftir því í nokkur ár en ákvað að vera sniðug og klára stúdentinn fyrst;) Síðan er ég mjög líklega komin á samning á hárgreiðslustofu fyrir sunnan þannig að það er allt að gerast hjá mér.

Vá það eru bara 5 dagar þangað til ég kem heim. Þetta er alveg ótrúlega fljótt að líða. En ég er búin að redda farangrinum mínum heim. Það er íslensk fjölskylda sem býr í götunni minn sem er að fara með gám til íslands og ég fæ að setja kassa með þeim þannig að þá ætti ég alveg pottþétt að vera ekki með neina yfirvigt. Sem er mjög fínt:)

Þjóðhátíðardagur Lúxara var á laugadaginn seinasta og var mjög fjölmennt í bænum. Við perurnar skelltum okkur út á föstudagskvöldið og niðri í bæ. Það voru nánast allar götur lokað og það var erfitt að finna bílastæði. En eftir langa keyrslu þá enduðum við í mjög góðu bílastæði. Göturnar voru fullar af fólki og þá skipti svoldið miklu máli að vera ákveðinn. Það var ótrúlega flott flugeldasýning um miðnætti. Það voru flestir barirnir með tjöld úti og mætum við auðvitað í tjaldið sem viking var með. Klikkuðum auðvitað ekki á því. Það var rigning úti mestan tíman og við urðum rennandi blautar en þar sem við erum íslendingar þá létum við það nú audda ekki skemma fyrir okkur. En þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt djamm:haha:

En núna ætla ég bara að hafa þetta stutt vildi bara deila þessu litla með ykkur. Hlakka ótrúlega til að koma heim en samt er smá kvíði yfir því að þurfa að kveðja alla og frekar skrítin tilhugsun um að maður sé ekkert að fara að koma hingað á næstunni. En ég verð einhvern tíman að draga fjölskylduna mína með mér hingað út og sýna þeim Lúxina sem maður er búin að vera að lifa í:D

Au revoir

Jónína


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 23:00:35 / joninar

Ár og öld

Vá vá vá hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast. Ég er ekki búin að nenna að vera í tölvunni að blogga það er búið að vera svo ótrúlega gott veður að ég er bara búin að vera úti að sleikja sólina:haha: En ég ætla ekki að vera neitt að tala meira um það þið verðið bara abbó.

En Kristín kom í heimsókn á fimmtudaginn og fór núna á þriðjudaginn. Það var ótrúlega mikið stuð hjá okkur. Ég fékk frí á föstudeginum til að eyða deginum með henni og við fórum auðvitað til Metz í Frakklandi að versla og það var sko heldur betur verslað:lol:

Á Laugadeginum var svaka program. Þá var 17. júní hátiðin haldin og byrjaði dagurinn með kvennahlaupinum kl. 10 um morguninn og auðvitað skelltum við Kristín okkur þangað. Við buðumst til að hlaupa með tvo 2 ára krakka með okkur þannig að við hefðum alveg pottþétt góða afsökun til að vera seinastar;) Konurnar voru örugglega mjög þakklátar þar sem enginn vildi nú vera síðastur:haha: Seinna um daginn fórum við síðan á hátíðina, þar voru ss pylsur, íslenskt nammi og lambakjöt í kvöldmat. Krakkarnir fengu málingu í framan og allskonar flottar greiðslu. Það var enginn smá fljöldi af íslendingum saman komin og maður þekkti ekki helminginn ef því. Síðan um kvöldið var audda kíkt á djammið. Það var ótrúlega gaman. Við byrjuðum á víking og fórum síðan á muko. Við Kristín fórum bara heim um 5 leytið þar sem við vorum orðnar mjög þreyttar eftir erfitt kvöld þar sem það tók mjög á að vera svona svakaleg fyndinn:lol: Greyjið Gutti var örugglega orðinn þreyttari en við á fyndninni okkar en takk kærlega fyrir skutlið:D

Á Sunnudeginum fórum við Kristín með fjölskuyldunn í Waliby sem er tivolígarður og það var ótrúlega gaman. Það var geggjað veður og ekkert smá flott og skemmtileg tæki. Það voru nokkur vatns tæki og við fórum í þau öll og í endanum urðu sum okkar rennandi blaut þar á meðal ég og Kristín. En það var sko alveg þess virði. En þetta var mjög skemmtileg helgi og var nóg um að vera:S

Fjölskyldan mín er að fara að flytja til Svíþjóðar í Ágúst þannig að núna næstu daga verður sko alveg nóg að gera hjá okkur að undirbúa það. Þannig að tíminn verður þá væntalega mjög fljótur að líða og ég verð örugglega bara komin heim áður en ég veit af. Hlakka ótrúlega mikið til en það er líka komin smá kvíði að þurfa að kveðja alla. En það er búið að flýta fluginu mínu þannig að ég kem heim 30. júní en ekki 1. júlí. Just for your info:$

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra best að fara að koma sér að sofa svo maður verði nú ekki þreyttur í allri sólinni á morgun:haha: En það verða allir að vera duglegir að commenta svo það líði nú ekki jafn langt þangað til ég blogga næst.

Choi

Jónína8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 21:19:29 / joninar

Finally

 Bonjour

Jæja það eru komnar inn nýjar myndir FINALLY:) Myndirnar frá Svíþjóð og Danmörku eru komnar inn en það eiga samt miklu fleiri myndir eftir að koma. Ég tek og tek myndir en það tekur hins vegar miklu lengri tíma að setja þær inn. En þetta kemur allt hjá mér. En ætla að koma mér í háttinn vildi bara láta ykkur vita ef þið hefðuð ekki tekið eftir þeim;) Mamma þetta er eitthvað fyrir þig. Þú vildir fleiri myndir af fjölskyldunni hérna færðu þær. Ég er svo góð dóttir ég geri alltaf það sem mér er sagt að gera:klikk: hehehe

Au revoir

Jónína


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 18:09:43 / joninar

Ein að deyja í tánni:(

Þar sem peruforeldrar Maríu Drafnar voru í burtu alla helgina og hún að passa þá flutti ég nánast heim til hennar. Við fórum með krakkana hennar og mína í piknik í mjög stórum og flottum garði. Við gáfum öndunum að borða og síðan er mjög stór róló þar sem að krakkarnir léku sér í og auðvitað var sól og blíða allan tíman sem hjálpaði mjög mikið8)Á sunnudeginum þá lágum við bara í sólbaði heima hjá Maríu Dröfn og síðan kom allt í einu mígandi rigning og þrumur og eldingar og hætti ekki fyrr en seint um kvöldið og það var æðislegt. Það var alveg ótrúlega flott að sjá þetta. En síðan kom bara sól og blíða daginn eftir:)

Hvern haldi þið að ég og María Dröfn hittum á göngugötunni í Lúxumbourg á mánudaginn???? Þið getið aldrei giskað á það. Það voru þeir Bubbi Morthens og Tolli bróðir hans. Þannig að núna erum við frægar:haha:En á miðvikudaginn þá er listasýning hjá Tolla og tónleikar hjá Bubba þannig að allar perurnar eru að fara að passa þá því flestir peruforeldrarnir eru að fara þangað.

Þar sem tvær perur, sem eru búnar að vera hérna í meira en ár, eru að fara heim í vikunni þá ákváðum við allar perurnar og Gutti að reyna að hittast á mánudagskvöldið og borða saman og kíkja síðan á djammið. Villi sem er íslenskur kokkur sem býr hérna úti eldaði fyrir okkur þennan ótrúlega góðan mat og fór síðan á djammið með okkur eftir á. Það var rosa gaman og skemmtum við okkur mjög vel. Það var líka gaman hvað við vorum margar sem komust en því miður voru það þrjár manneskjur sem komust ekki með okkur. Við kíktum á Viking eftir matinn eins og alltaf og fórum síðan til tilbreytingar á Melosina og síðan á White. Ótrúlega skemmtilegt kvöld takk fyrir það stelpur og Gutti og Villi. Við María fórum að versla áður en við kíktum á djammið og þurftum því að gera okkur sætar fyrir djammið á mettíma og þótt ótrúlegt sé þá tókst það en því miður þá tókst mér í leiðinni að tábrjóta mig. Ég er að drepast í tánni:cry:Ætlaði bara að vera svo góð að deila þessu með ykkur;)

En ég ætla að hætta þessu blaðri og halda áfram að liggja í leti og horfa á video í smá þynnku:$

Kveð úr Lúxlandinu

Jónína


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 21:54:49 / joninar

Svíþjóð og Danmörk

Það er orðið svoldið langt síðan ég bloggaði síðast en ég er bara ekki búin að nenna að setjast við tölvuna og blogga síðan er búið að vera svo ótrúlega gott veður. Sól hvern einasta dag, kemur upp mjög snemma og fer ekki fyrr en á kvöldin sem er æðislegt8) Þannig að ég hef frekar setið úti í sólbaði í staðin fyrir að hanga inn í tölvunni. En ég er búin að gera margt skemmtileg síðan seinast.

 

 

Ég fór til Danmerkur og Svíþjóðar en það eru nú að verða gamlar fréttir því það er meira en vika síðan ég kom aftur heim. En það var rosalega gaman og hápunktur ferðarinnar var of course Tívolíið í Kaupmannahöfn. Það var geðveikt gaman:)Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór til Danmerkur en annað skiptið sem ég fór til Svíþjóðar. Nema núna fór ég á annan stað Malmo. Það var mjög margt skoðað og Svíþjóð er alltaf jafn flottur staður. Það var mikið labbað og skoðað í búðum og mikið lagt á sig fyrir verslana ferðirnar. Það var mjög gott veður allan tíman og við vorum mikið úti í sólinni. Fórum einn daginn í einhvern skemmtigarð sem var með mjög stóru leiksvæði sem krakkarnir léku sér í. Aroni til mikillar gleði því hann var komin með leið á búðum. Á meðan reyndum við Sigga að sleikja sólina:D

 

 

Við vorum á rosa flottum hótelum á báðum stöðum 4 og 5 stjörnu hótelum. En það var samt flottara í Danmörk því við vorum á hóteli sem var rétt hjá tívolíinu og við vorum á 15. hæð þannig að við fengum æðislegt útsýni yfir nánast alla borgina og þjónustan var sko ekki slæmt;)

 

 

Við fórum í vaxmyndasafn í Danmörku sem var rosaleg flott. Sigga, Aron og María fóru út þegar við komum inn í Horror partinn en ég, Kristinn og Siggi héldum áfram og við vorum komin með hjartað niður í buxur því við héltum alltaf að það myndi allt í einu einhver grímuklædd manneskja labba að okkur en það gerðist ekki. Síðan fórum við á World Guiness recort safn sem var líka mjög skemmtilegt og fróðlegt. T.d  þá var þyngsti maður í heimi um 400 kíló sem er meira en helmingi þyngri en ég, Kristinn, María og Siggi til samans. Sem er nokkuð mikið:$ Við fórum líka í Skoðunarferð á báti þar sáum við mjög margt flott. Síðan var líka verslað fullt í Danmörku eins og í Svíþjóð. Ég ætla að enda á að tala um það skemmtilegasta í ferðinni og það var tívolíið. Ég byrjaði á því að fara ein með Maríu þau hin komu svoldið á eftir okkur. Þannig að ég byrjaði á því að prufa nánast öll vægari tækin og flest þeirra tvisvar. Síðan þegar þau hin komu þá fór ég í skemmtilegri tækin og vá hvað það var gaman. Því miður þá fór ég bara ein í þau tæki en það var samt svo geðveikt gaman. Siggi var greinilega með reynslu á tækjunum því hann var í því að benda mér á hin og þessi tæki sem ég yrði að prófa. En þetta var ótrúlega skemmtileg ferð:haha:

 

Myndirnar úr ferðinni koma ekki alveg strax inn þetta er allt í vinnslu þar sem það er eitthvað klikk í gangi en það lagast vonandi fljótlega svo þið getið vonandi séð öll skemmtileg heitin fljótlega.

 

 

Þessa vikuna er ég bara búin að vera að passa á fullu og síðan er maður búin að vera að reyna að nota tíman til að fara í ræktina þegar maður er ekki að passa. Síðan auðvitað að vera eitthvað í sólbaði. Þannig að það er búið að vera alveg nóg að gera hjá mér þessa dagana. En þar sem ég er bara farin að tala um tilgangslausa hluti og hef ekkert meir að segja þá ætla ég bara að fara að hætta þessu og koma mér í háttinn. 

 

 

En bið að heilsa í bili

 

Jónína


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 22:54:37 / joninar

Skrítnir Páskar

Jæja það er heldur betur langt síðan síðast. Búið að vera pínu mikið að gera og einhverja hluta vegna hef ég alltaf farið að gera eitthvað annað en að blogga. En ég er líka ekki sátt við að fólk sé ekki að commenta eða skrifa í gestabókina:(En hrós vikunar fá Ásbjörg og litli sæti Magnús Elí:)Ólöf átti afmæli um daginn og við stelpunar fórum og héldum upp á það með henni. Síðan er búið að vera fullt annað um að vera hjá mér sem ég man ekki núna í augnablikinu. Ég ákvað bara að blogga smá áður en ég fer svo til Danmerkur sem er bara núna á miðvikudaginn og kem ekki aftur heim fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku.Ég er sem sagt að fara með fjölskyldunni til Svíþjóðar og síðan til Danmerkur. Sem verður bara stuð:haha:

Systir Sigga verður hjá okkur um páskana þannig að við ákváðum að fara öll í dýragarðinn í Frakklandi á föstudaginum og það var ekkert smá gaman. Ekkert smá stór dýragarður og það voru nánast öll dýr sem manni dettur í hug. Hann var mjög svipaður og dýragarðurinn í Svíþjóð nema það vantaði aðal sýninguna sem var í Svíþjóð, það var höfrungasýningin sem var GEÐVEIK. En í staðinn var páfagaukasýning og margt fleira. Við fórum á ísbjarna sýninguna og vorum svo heppin að lenda á þeim degi þegar ísbjörninn vildi ekki fara ofaní vatnið þannig að þeir vildu ekkert gera fyrir okkur, og það gerist bara 3 – 4 sinnum á ári þannig að hversu miklar líkur voru á því að það myndi akkurat gerast þegar við förum þanngað TÝPÍSKT. Það var líka svo gaman að sjá hvað Aron og krakkarnir skemmtu sér vel. Svo fékk maður að gefa dýrunum sykurpopp sem þeim fannst vera aðal sportið:$

Páskarnir voru frekar skrítnir hjá mér í ár en samt ágæt tilbreyting frá því vanalega:lol:Þar sem nánast allar perurnar voru í burtu þá bjóst ég við því að ég myndi bara sitja heima og naga á mér táneglurnar en táneglurnar eru enþá á sínum stað. Því Gutti bjargaði mér alveg. Á Laugadagskvöldið kíkti ég til hans og Evu, sem er systir hans og þar voru nokkrir vinir þeirra og þau voru að grilla. Þannig að þetta voru bara lúxarar nema ég og gestgjafarnir. En síðan kom Lísbet, sem er líka pera og Haffi kærastinn hennar. Sem betur fer því þá voru fleiri íslendingar sem hægt var að tala við. Síðan kíkti ég með Gutta og 3 vinum hans á víking og skemmti mér bara nokkuð vel. Þar sem ég var að keyra þá réð ég ferðinni og var með völdin. Enda var það fínt því við fórum bara frekar snemma heim þar sem fólk var orðið misdrukkið og sem betur fer því það ældu 2 á leiðinni heim. Þannig að það voru allir svaka hressir á leiðinni heim8|Þeir sem ældu voru báðir strákar sem sýnir hversu öflugar við stelpurnar erum en við vorum reyndar bara tvær í þetta skiptið en samt:oEn þetta kvöld bjargaði páskunum hjá mér:D

 Páskadagurinn var hálf furðulegur hjá mér, ég vaknaði seint og þá voru allir farnir úr húsinu í göngutúr. Þar sem ég var löt og það var páskadagur þá nennti ég ekki að hafa fyrir því að vera að vakna snemma til að fara með þeim. Þannig að var bara ein í húsinu í dágóðan tíma og lá bara í leti og hafði það mjög gott. Þannig eiga páskarnir að vera:haha:Ég var svo heppin að fá 2 páskaegg nr. 4 þannig að páskarnir hjá mér voru mjög notalegir, horfa á video og borða páskegg:PSíðan fer maður bara að hlaupa fituna af sér núna þegar páskarnir eru búnir;) En ég nenni ekki að vera að blaðra þetta lengur þannig að ég ætla að fara að hætta þessu og koma mér að sofa. Ég segi síðan frá ferðinn þegar ég kem frá Danmörku:) 

 Kveð í bili frá Lúxinni

Jónína


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 22:14:34 / joninar

Geðveikt djamm

Þar sem að Sigga fór til Íslands á föstudaginn þá var ég einstæð móðir þann daginn og í dag. En það gekk ekki betur en að eitthvað borð var að þvælast fyrir hausnum á Aroni á föstudaginn og hann datt á það og fékk skurð á ennið. María Dröfn bjargvættur kom og hjálpaði mér og skutlaði okkur upp á sjúkrahús þar sem við eyddum nokkrum tíma þar bara til að láta setja heftiplástur á barnið. Við María erum orðnar ansi vanar einhverjum slysum þannig að ef það hefði verið til heftiplástur á heimilinu þá hefðum við getað reddað þessu. Aron var ótrúlega duglegur og grét bara aðeins fyrst. Síðan fékk hann meir að segja ís í verðlaun bara af því að ég er svo góð:)En þetta fór samt allt vel. Mamman fer í burtu og barnið er í því að slasa sig. Þegar Sigga kom heim þá sá hún Aron með gat á hausnum, sprungna vör og marblett á kinninni en gatið kom bara þegar ég var að passa hann hitt var þegar Siggi var með hann. Ótrúlegur óheppinn og er alltaf að slasa sig.

Á miðvikudaginn þá fórum við á VIP og horfðum á tvo ótrúlega flotta karlstrippara. Sem voru greinilega ekki að strippa í fyrsta skiptið:haha:Vá hvað það var gaman og við grétum úr hlátri á tímabili þar sem þeir tóku báðir Völu sem er íslensk aupair og voru að dansa í kringum hana. Hún var aðal fórnalamb þeirra og ég held að henni hafi ekki þótt það neitt leiðinlegt:)

Í gær þá fórum við á Pahiu (Pæju) sem er skemmtistaður hérna úti og ætluðum heldur betur að fara að hlusta á P. Diddy. Þar sem hann var voða merkilegur með sig og var greinilega ekki í stuði til þess að syngja þá borguðum við okkur inn til að fá að sjá hann sitja og borða súkkulaðiköku. Síðan sagði hann nokkur orð áður en hann fór. Það voru svo margir og stórir gaurar í kringum hann þannig að maður sá hann ekkert rosalega vel. Frekar glataður gaur en samt var þetta mjög gott kvöld.

Um helgina var aupair helgi þannig að á laugadeginum hittumst við íslensku aupair stelpurnar heima hjá Maríu Dröfn. Fa eldaði ótrúlega góðan tælenskan mat og við vorum 9 stelpur sem borðuðum saman. Síðan eftir matinn bættust 4 við. Siðan var farið á víking þar sem aupair kvöldið var haldið. Þar voru fullt að fólki og mest var um íslenskar, sænskar og danskar aupair. Það var geðveikt gaman. Síðan var farið á muko muko og dansað af sér rassgatið þar og síðan endaði með því að við fórum á white. Samt frekar skrítið djamm þar sem maður missti eiginlega af einum klukkutíma þar sem tíminn breyttist um klukkutíma, þegar klukkan var orðin 2 þá breyttist hún í 3 en þá kom maður líka bara klukkutíma seinna heim:)Þegar við ætluðum að fara heim þá vorum við allar orðnar geðveikt svangar og fórum því á gare á lestarstöðina og fengum okkur eitthvað að borða og fórum síðan saddar og geðveikt ánægðar heim. Þetta var geðveikt gaman og lang skemmtilegasta djammið sem ég hef farið á síðan ég kom hingað og þau verða alveg örugglega fleiri svona skemmtileg:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 10:45:21 / joninar

Heldur betur

Ég hef nú ekki mikið að segja en ég verð nú samt að blogga eitthvað. Við stelpurnar fórum og kíktum á djammið um helgina og það var geðveikt gaman. Ég og María Dröfn fórum út að borða á föstudagskvöldið kíktum síðan aðeins á víking sem er aðal perustaðurinn. Við hittumst þar alltaf og byrjum djammið þar. Síðan vorum við bara rólegar og fórum snemma heim. Við þurftum nebblega að spara orkuna fyrir búðaráp sem var á laugadeginum. Við fórum heldur betur ekki tómhentar út úr búðunum:) Síðan var heldur betur kíkt á djammið um kvöldið og það var rosa stuð. Á sunnudeginum fór ég með Maríu Dröfn að skutla konu á flugvöllinn sem tók einhverja 4 tíma fram og til baka. En okkur leiddist nú ekkert á leiðinni. Þegar tvær skemmtilegar manneskjur hittast þá er ekki erfitt að halda uppi stuðinu;) Síðan í gær kíktum við í ræktina og í kvöld erum við að spá í að kíkja í bíó. Síðan er alvega fullt skemmtilegt um að vera á næstunni. Á miðvikudaginn er karlstrippari á einum staðunum og maður lætur sig nú ekki vanta þar:DSíðan á fimmtudaginn eru tónleikar með Puff dadd og maður verður nú líklega að mæta þangað og hlusta á gaurinn. Síðan um helgina þá er aupair helgi og þá hittast allar aupair stelpurnar sem eru í Lúx frá öllum löndum og djamma síðan um kvöldið. En ég ætla ekki að vera að blaðra meira, hér er einn góður handa ykkur:

A very loud, unattractive, mean woman walked into Wal-Mart with her two kids, yelling obscenities at them all the way through the entrance.
Wal-Mart Greeter says "Good morning, and welcome to Wal-Mart. Nice  children you have there. Are they twins?"               
The ugly woman stopped yelling long enough to say, "Hell no they ain't!  Oldest one's 9 and the other one's 7. Why the hell would you think they're twins? Are you blind, or just stupid?             "I'm neither blind nor stupid", replied the greeter. "I just couldn't believe you got laid twice."

Hahahahaha!! En ég ætla að skella inn smá könnun sem ég gerði hjá Maríu Dröfn og það er skilda að allir skrifi eitthvað 

Smá spurningar fyrir ykkur  

1.Þekkiru mig persónulega?

2.Hvað finnst þér um mig?

3.Langar þér að kynnast mér betur?


4.Myndiru vilja koma með mér einni a eyðieyju í viku?

5.Ef þú mættir bara taka 3 hluti með þér á eyðieyjuna, hvað mindi það vera?

6.hvað mundiru gera ef þú værir fastur/föst í lyftu með mér?

7.Ertu með tattoo eða piercing?

8.Mundiru gráta ef ég mundi deyja?

9.Hver er versti kækurinn þinn?

10.Hvað minnir þig á mig?

11.Mynduru verja mig ef eitthver væri að níðast á mér?


12. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þér á móti?

 Kveð núna

Jónína


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 19:50:11 / joninar

Vá ég elska París

Ég veit að ég er ekki búin að vera duglega að blogga en ég ætla líka bara að skifa um eitthvað skemmtiegt sem er búið að vera að gerast hjá mér. Þannig að ekki búast við því að ég sé að fara að skrifa á hverjum degi, en ég skal samt reyna að vera duglegri en ég er búin að vera:)

Núna þá er ég með sögu handa ykkur því það var heldur betur skellt sér til Parísar um helgina og við fórum saman fjórar gellur. Við lögðum af stað á föstudeginum og rétt náðum lestinni vegna þess að einhver gleymdi vegabréfi og einhver gleymdi lestamiðanum:$ En allt fór samt vel sem betur fer því þetta var svaka ferð8|

Það byrjaði með því að fjórir svertingjar tóku á móti okkur á lestastöðinni í París og límdust við okkur. Þeir létu okkur ekki vera enda erum við að tala um mjög fallegar stúlkur;) en á endanum fóru þeir. En þetta var bara byrjunin, við lentum í öllu því sem við gátum lent í. Við fengum einhverja djö... sekt því einhverjir heimskir öryggisverðir vildu ekki hlusta á okkur og trúa okkur:evil: Við sem erum svo saklausar stelpur og gerum aldrei neitt af okkur;) Við vorum næstum því rændar eða einhver gaur var næstum búin að taka töskun af Maríu Dröf en gaurinn hélt greinilega að við værum svona sterkar þannig að hann hætti bara allt í einu við en það var bara heppni, sölumennirnir létu okku ekki í friði og þeir voru nánast allstaðar en það er svo sem bara mjög venjulegt þarna, við lentum mjög oft í því að einhverjir ógeðslegir gaurar límdust við okkur eða voru í því að snerta á manni hárið frekar creepy. En þá var rosalega gott að geta bara ekki skilið neitt og vita neitt og þá allt í einu hættum við að skilja alla ensku. Síðan endaði þetta þannig að við lentum í einhverjum dópista og róna á leiðinni heim í lestinni. Ég segi nú bara greyið gaurinn. Því hann kom inn í lestina og ætlaði að tala við okkur og það var á síðustu stoppustöðinni áður en við komum til Lúxumborg. Síðan fór lestin af stað og greyið maður fastu í lestinn og örugglega enþá í Lúx því ég efast um að hann komist heim til sin með næstu lest.  En þetta var bara til að lífga aðeins upp á ferðina og gera hana svoldið meira spennandi en hún var. En þetta var samt ótrúlega gaman.

 Á föstudagskvöldið fórum við að Effelturninum og sáum hann allar nema ein í fyrsta skiptið og skoðuðum allt sem var hægt að skoða hjá honum. Síðan urðum við nú að vera ekta túrista og láta mála mynd af okkur, annað var ekki hægt. Á Laugadeginum fórum við að Effel sem var á endanum orðinn einn af okkar bestu vinum þaðan fórum við í sightseeing og sáum alla helstu og flottustu staðina. Ef þið hafið heyrt um hringjarann frá Notre dame þá fórum við inn í þá kirkju og við vorum svo heppnar að lenda í einni messu í leiðinni. En því miður þá sáum við ekki sjálfan hringjaran. Síðan fórum við að Sigurboganum og þar var löng gata með alveg fullt af búðum og það var verslað pínu mikið þar:) Er ekki líka talað um að París sé borg tískunar? Þegar við vorum búnar að eyða talsverðum tíma þar þá fórum við upp á hótel að gera okkur sætar fyrir kvöldið. En það tók nú ekki langan tíma því ekki þurfti að gera mikið til að bæta við fegurðinni, eða það myndu allavegana Sigrún og Ólöf segja sem voru egóistar ferðarinnar. Þær sungu allan tíman ég er furðuverk en breyttu því í ég er fallegust þvílíkir textahöfundar:) Ég og María Dröfn vorum nú komnar með algjört ógeð af þessu blessaða lagi. Síðan var ferðinni haldið að besta vini okkar Effel turninum. Eftir nokkuð langa leit af taxa bílstjóra sem okkur leist vel á þá fórum við á einhvern þrælmagnaðan skemmtistað og þar kunnu þeir sko að gera kokteila. Þar var stoppað í dágóðan tíma en þar sem við vorum allar orðan frekar þreyttar þá ákváðum við að fara upp á hótel ágætlega snemma og vöknum bara fyrr dagin eftir til að fara upp Effel turnin og það var geðveikt gaman. Ekkert smá flott þarna upp og það sem maður sá þetta var ótrúlega gaman:haha: Síðan fórum við á lestarstöðina og í þetta skiptið mættum við svoldið fyrr en á föstudeginum. Það var nú samt alveg ótrúlega gott að koma heim eftir allt þetta ævintýri.

En já Ásbjörg meðan ég man við fórum á laugadagskvöldið á sama veitingarstaðinn en þvi miður þá var ekki sami þjónn ég hefði nú viljað sjá þennan fræga þjón sem er búið að vera að tala um annsi mikið.

En þetta er ferð sem ég mun aldrei gleyma þetta var geðveikt gaman og ég á pottþétt eftir að fara einhverntíman aftur vonandi förum við aftur áður en ég fer heim:) Síðan er það bara að fara að hugsa um næstu ferð sem verður vonandi annað hvort sólarströnd eða Amsterdam:)Myndirnar koma inn mjög fljótlega þetta er allt saman í vinnslu hjá mér og það eru ekki fáar myndir sem eru að fara að koma;)

Kveð þangað til næst

Jónína


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 20:03:30 / joninar

Svakaleg skíðaferð

Jæja þá er maður komin í Lúxina og búin að gera og sjá fullt af hlutum. Þar sem þetta er fyrsta blogg þá ætla ég að hafa það bara í styttra kantinum.

Ég lenti hjá rosalega góðri fjölskyldu og ég held bara að ég hefði ekki getað lent hjá betri. Það eru þrír krakkar á heimiliu. Það er Kristinn Már sem er 13 ára, María Mjöll sem er 11 ára og Aron Bjarki sem er 2 ára. Síðan eru það auðvitað nýju foreldrar mínir Sigga og Siggi sem koma fram við mig alveg eins og væri dóttir þeirra sem ég ótrúlega fínt.

Ég fór með fjölskyldunni til Austuríkis í skíðaferð til Wagrain í seinustu viku og það var ótrúlega gaman. Við fórum í vikuferð og gistum á hóteli sem var staðsett á besta staðnum, beint á móti skíðalyftunni. Eina sem maður þurfti að gera var að labba yfir götuna:) Þar sem ég var með krökkunum í herbergi þá var svaka stuð hjá mér allan tíman non stop;)

Þar sem ég hafði ekki farið á skíði í 4 ár þá var erfitt að byrja en þetta kom allt saman eftir að hafa flogið nokkrum sinnum á rassinn. Enda var maður með smá strengi í rassinum á öðrum degi. Til að rifja upp gömlu skíðataktana síðan í Varmahlíðarskóla þá fór ég í skíðakennslu og auðvitað líka til að horfa aftan á skíðakennarann og vonaði að hann yrði rosa flottu eins og þeir eru flestir en það hélt ég þangað til ég sá kennarann. Ég var nebblega svo ótrúlega heppin að lend á ljótasta skíðakennaranum:( Ég sem hélt að allir skíðakennarar væru flottir en það var greinilega stór misskilningur. En skíðakennslan gerði samt sem áður gagn. En þetta var rosalega gaman:)

Við María Dröfn fórum í búðir í Belgíu í gær sem var Laugadagurinn og ég missti mig það var ekkert smá gaman. Ég er ekki búin að komast almennileg í búðir síðan ég kom hingað þannig að ég verslaði og verlaði og ég verslaði:) Þannig að núna á þrem vikum er ég búin að fara til Lúxumborgar, Þýskalands, Austuríkis og Belgíu:) Síðan næstu helgi þá erum við fjórar perur að fara til Parísar og þá verður stuð. 

Síðan er maður nú búin að vera að kíkja eitthvað með stelpunum á djammið þannig að ég er búin að vera að kynnast fullt af fólki og þetta er allt rosa gaman sé ekki eftir að hafa farið:) En þetta er samt allt öðruvísi en heima og vá hvað áfengið er ódýrt hérna:) En því miður þá kann engin að gert almennilega kokteila hérna frekar fúlt:whut: Þannig að hvað á ég þá að drekka?

Vá ég ætlaði að hafa þetta stutt en ég hafði greinilega frá meiru að segja en ég hélt:) En ef ég á að halda áfram að blogga þá verða allir að vera duglegir að commenta eða að skrifa í gestabókina bara eitthvað smá svo ég vita að það séu einhverjir að lesa þetta:haha:

Ég kveð í bili frá Lúx

Jónína


» 15 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Ni�?�?�?�??�?�??�?°urtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1698 dögum
RSS tengill